Satt Restaurant

Þú velur það sem þér þykir gott því þú veist hvað er gott fyrir þig. Við matreiðum fyrir þig af innlifun úr besta hráefni sem við finnum. Við vitum upp á hár hvaðan það kemur og hversu lítið þarf til að gera úr því lostæti. Það þarf ekki að fara langt. Besta fæðan er yfirleitt skammt undan.

Veitingastaðurinn Satt

Satt er glæsilegur nýr veitingastaður á Icelandair hótel Reykjavík Natura, sem leggur áherslu á ferskmeti, hollustu og virðingu fyrir umhverfi og náttúru. Satt er hlýlegur veitingastaður með opnu eldhúsi. Staðurinn er búinn íslenskum húsgögnum auk þess sem Drápuhlíðargrjót skipar veglegan sess og rammar inn fallegan arinn sem gleður augað. Staðurinn er með lifandi starfsemi allan daginn og býður jafnt hótelgesti sem innlenda viðskiptavini velkomna í morgunverð, hádegisverð, kaffi og/eða kvöldverð.

  • Kokkahópur
  • Banner - Kaffibolli
  • Kokkur

    Velkominn á Satt

  • Staðurinn
Book your table

Satt Restaurant

Nauthólsvegur 52
101 Reykjavík

Sími: +354 444 4050
Fax.: +354 444 4051

satt@sattrestaurant.is

Skráning á póstlista

And/or you can follow us on Social Media