Hádegishlaðborð á Satt alla virka daga milli kl. 11.30 - 14:00. Ferskleiki, hollusta og íslenskt hráefni er í fyrirrúmi þó oft sé leitað út fyrir landsteinana að skemmtilegum samsetningum og stílbrögðum sem gæla við bragðlaukana.
Á borðinu má meðal annars finna heimalagaða súpu dagsins og nýbakað brauð úr. Mismunandi salat og grænmeti, allt frá léttu grænu út í ýmis konar rótargrænmeti og ávexti. Þrír aðalréttir hlaðborðsins eru heitur grænmetisréttur, próteinréttur með kjöti- eða fisk og svo velútbúið salat dagsins sem er tekið alla leið með faglegum metnaði. Fastur liður á hlaðborðinu eru hinar frægu eldbökuðu flatbökur Satt, með fjölbreyttu áleggi. Síðast en ekki síst er glæsilegt úrval af eftirréttum sem gleðja bragðlaukana sem og augað.